Á döfinni
SUMARTILBOÐ Í YOGAVIN 2016
Opið kort 3 mánuðir 21000
Fjölbreyttir yogatímar í allt sumar.
Miðsumars verður yogað í kyngikrafit öræfanna.
Fylgist með fésbókinn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Augnabliksferðir 2016
Fegurðin við Langasjó 28. - 31. júlí
Gengið um fagurlendi öræfanna, yoga í faðmi fjalla, trúss með fullu fæði
Gengið um fagurlendi Fögrufjalla, yoga í fjallasal, sigling á Langasjó, gómsætt hálendiseldhús Brynhildar, leiðsögn og yoga með Ástu. Trússferð með fullu fæði.
"Í sumar var ég svo lánsamur að fara með Augnabliksferðum að skoða fegurðina við Langasjó. Þótt náttúran sé auðvitað aðalatriði í svona ferð vegur fararstjórnin ekki síður þungt. Yoga kvölds og morgna og andlegt nesti fyrir göngurnar gera ferðina að svo miklu meira en bara hálendisleiðangri. Upplifun á stórkostlegu landi verður enn sterkari. Að mínu mati er þetta ferðamennska á heimsmælikvarða. " Christopher Lund 2009
Yoga Kennaranám hefst 5. ágúst 2016
Kyrrðarvaka í 19. - 21. nóvember 2016
Yoga og hugleiðsluhelgi með Ástu
Yoga, hugleiðsla, yoga nidra, kyrrðargöngur úti í náttúrunni, möntrur, heilsufæði, heitur pottur, fræðsla, hvíld.
Kyrrðarvakan er haldin í þögn í Skálholtsbúðum og er frábært tækifæri til að næra andann og stunda yoga og hugleiðslu í fallegu umhverfi. Þátttakendur njóta leiðsagnar sem dýpkar iðkun og eflir meðvitund um augnablikið hér og nú.
Yoga og núvitund grunnnámskeið
Næsta námskeið hefst 5. september 2016
Mánudaga og miðvikudaga kl. 19.00 (90 mín)
www.yogavin.is
Skemmtilegt og markvisst námskeið. Kenndar eru yogastöður (asana og vinyasa), öndunaræfingar (pranayama), einbeiting (dharana), núvitund (mindfulness) og slökun sem á einfaldan og áhrifaríkan hátt eflir meðvitund okkar og styrkir öll grunnkerfi líkamans. Yogaástundun er frábær leið til að hlúa að jákvæðum samskiptum og efls sköpunarkraftinn í daglegu lífi.
Yin Yoga og núvitund helgarnámskeið haust 2016
Kennari Ásta Arnardóttir yogakennari
Fyrirlesari Dagmar Eiríksdóttir nálstungufræðingur Li, Ac
Yogavin, Grensásvegi 16, efsta hæð
Djúpnærandi helgarnámskeið í Yin Yoga og hugleiðslu. Kenndar verða yin yoga seriur sem styrkja orkubrautirnar og líffærin. Kennd verður seria fyrir nýrna og blöðrubraut og lifra og gallblöðrubraut. Sú fyrri styrkir bakið, er kvíðastillandi og eflir nýrnaorkuna en sú síðari styrkir lifur og gallblöðru og er hreinsandi fyrir líkama og tilfinningar. Einnig verður kennd undirstaðan í núvitund vipassana hugleiðlsa og hvernig iðka ma núvitund í yin yoga.
Skráning og nánari upplýsingar
Núvitund alla þriðjudaga kl. 20.15
Innsæis hugleiðsla vipassana
Yogavin, Grensásvegi 16, efsta hæð
www.dharma.is
Ásta Arnardóttir
Skráning og nánari upplýsingar