Menu:

Byrjendanámskeið

 

Yoga og núvitund

hefst 3. febrúar FULLT

hefst 11. mars skráning


Kennt í Yogavin
Námskeiðið er 4 vikur + 2 vikur opið kort í framhaldstímum
Kennari Ásta Arnardóttir
Verð 19.500 - yogabæklingur innifalinn og nemendur eru velkomnir í opna framhaldstíma*

Skemmtilegt og markvisst grunnnámskeið í yoga og hugleiðslu. Kenndar eru yogastöður (asana og vinyasa), öndunaræfingar (pranayama), einbeiting (dharana), núvitund (mindfulness) og slökun sem á einfaldan og áhrifaríkan hátt eflir meðvitund okkar og styrkir öll grunnkerfi líkamans.  Lögð er áhersla á að styrkja líkamann, auka sveigjanleika og efla meðvitund um fjorar stoðir núvitundar þ.e. líkama, tilfinningar, hugur og dharma (eðli þess sem er). Farið er í grunninn í yogafræðunum og hvernig yogaástundun skapar jafnvægi og eflir jákvæða og heilbrigða lífshætti. Yogaástundun er frábær leið til að hlúa að jákvæðum samskiptum og efls sköpunarkraftinn í daglegu lífi.


Áttu erfitt með svefn?
Ertu kvíðin/inn?
Langar þig að efla sveigjanleika og styrk?
Ertu með vöðvabólgu og verki?
Er langt síðan þú hefur gefið þér tíma til að njóta augnabliksins?

Margir hafa komið á byrjendanámskeið og undrast árangurinn!


Skráning og nánari upplýsingar